Af hverju að fræðast um köngulær?
Það spennandi að rannsaka og skoða umhverfið og dýralíf, og velta fyrir sér líffræðlegum fjölbreytileika og hlutum eins og af hverju lífverur eru eins og þær eru. Stærri dýr grípa athygli almennings frekar en þau litlu, en ´hulin veröld´ smádýranna er einstaklega spennandi. Köngulær eru liðfætlur (Arthropoda) sem teljast til áttfætlna (Arachnida) og eru meðal áhugaverðustu smádýra á jörð. Hér eru nokkrar ástæður af hverju þú ættir að hafa áhuga á og fræðast um þessar áhugaverðu og fjölbreytilegu liðfætlur:
-Köngulær eru stærsti hópur rándýra á jörð - þekktar eru yfir 50.000 tegundir og þær eru allar rándýr. Köngulær éta aðrar liðfætlur, eins og flugur, fiðrildi, sem og leiðindaskepnur eins og kakkalakka og silfurskottur. Þær eru því afar góð húsdýr!
- Á Íslandi eru um 80 tegundir köngulóa, allar hættulausar manninum, en gaman getur verið að fylgjast með atferli þeirra, t.d. hvernig þær búa til vefi
- Köngulær eru þekktar sérstaklega fyrir tvennt: þær búa til eitur og silki.
- Köngulóaeitur er sérhæft til að ráða niðurlögum skordýra. Almennt eru þessi eitur ekki hættuleg mönnum, þó örfáar tegundir (sérstaklega í Ástralíu) geti verið skaðlegar fólki. Eitur köngulóa er notað í lækningaskyni, eins og eitur margra annarra lífvera.
Köngulóarsilki er eitt merkilegast efni sem búið er til af dýrum. Það er óvenjulegt miðað við manngerð efni í því að það er á sama tíma mjög sterkt (sterkara en stál) en líka mjög sveigjanlegt. Þessir eiginleikar gera það að verkum að það kostar mikla orku að slíta silkiþráð (miðað við þykkt), þannig er silki ´harðara´ (tougher) en t.d. kevlar sem notað er í skotheld vesti!
Köngulær eru aðal afræningjar af skordýrum í nær öllum vistkerfum og því vistfræðilega mjög mikilvægur hópur

Ingi Agnarsson
Ingi Agnarsson, aka köngulóarmaðurinn, er prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á köngulóm í tæp 30 ár og birt fjölda vísindagreina um t.d. nýjar tegundir köngulóa, vist- og þróunarfæði þeirra, líflandafræði, eiginleika köngulóarsilkis, erfðafræði og margt annað. Hann á hund, langar í kött, en hefur ekki köngulær sem gæludýr, þær eru vinnan!
Ingi leggur áherslu á að vinna að rannsóknum með nemendum og á að fræða almenning um þessi stórkostlegu dýr! |